Leiðbeiningar fyrir tækjaleigu

Krapavélar

 Leiðbeingar & kennsla við afhendingu.

1. setja boxið framaná vélina og stinga í samband (helst ekki í fjöltengi)

2. passa að belgurinn ( þar sem krapið fer í ) hafi ekki skekst í flutningum, losa aðeins hvítu skrúfurnar og herða aftur

3. Setja 8 lítra af vatni og 2 lítra af bragðefni í vélina, vatnið fyrst

4. kveikja á vélinni, allir takkar eiga að vera eins, ef vélin er í gangi þá er allt rétt

5. eftir að krapið er klárt eftir ca 1,5 klst, þá má setja auka líter af vatni eða áfengi.

Eftir notkun skola í gegnum vélina með vatni ath að slökkva þá á takkanum sem á stendur FREEZE fyrst

Súkkulaði Gosbrunnar

 Leiðbeingar & kennsla við afhendingu.

1. Bræða súkkulaðið yfir heitu vatni eða í örbylgjuofni

2. Hella í skálina

3. Alls ekki setja súkkulaði í toppstykkið þá myndast loft tappi sem mun bara gera óskunda.

4. kveikið á brunninum 2 min áður en súkkulaðið er sett í hann 

5. ef súkkulaðið er keypt hjá okkur þá sérðu hvítar perlur, þetta er kakósmjör sem verður að vera svo súkkulaðið flæði betur og flýtir fyrir að það storkni á ávöxtunum.

Poppvél

 Leiðbeingar & kennsla við afhendingu.

1. Setja vélina saman

2. kveikja á öllum tökkum

3. Setja olíu í pottinn ásamt 3 popp baunum

4. þegar poppbaunirnar 3 eru poppaðar þá má setja 2 box af baunum ásamt einni skeið af salti í pottinn

5. Það tekur ca 5 mín að poppa þennan skammt, passa að fylgjast vel með og þegar það hættir að poppa þá að losa pottinn rösklega 2 sinnum

6. setja olíu og 1-2 box af poppi og eina af salt , allt í einu og svo koll af kolli

7. Þegar þú ert að poppa síðasta skammtinn þá þarf að slökka á hitanum á pottinum þegar poppið er byrjað að koma uppúr pottinum, leifa snúningnum samt að vera á.

ATH að þrífa bara með blautum klút, engin efni.

Bæta má við saltið ef ykkur finnst poppið salt lítið

Taka svo pottin úr honum fyrir fluttning svo glerið brotni ekki.

Candyfloss

 Leiðbeingar & kennsla við afhendingu.

1. setjið vél saman eins og var kennt við afhendingu.

2. muna að taka vél úr bremsu.

3. setja vél í gang í ca 5 min áður en sykur er settur í, engan hita eða síðustu mín kannski smá hita.

4. setja sykur upp að spjaldinu sem er í hólfinu.

5. setja minni sylur en meiri og muna ð slökkva alveg á vélinni þegar meiri sykur er settur í hólfið.

6. ekki hafa vélina á hæðsta hitastigi, þá brennur sykurinn.

7. gott að bleita í prikunum til að candyflossið festist betur við prikið.

8. passa sig vélin er heit

9. ekki hætta með sykur í hólfinu það verður að klára sykurinn áður en vél er stoppuð

10. þrífa allan sykur og áhöld fyrir skil

11. Gott að ryksuga úr hólfinu til að koma í veg fyrir að vélin stíflist

  

Soundbox

 Leiðbeingar & kennsla við afhendingu.

Battery er hlaðið fyrir leigu en það tekur um 30 min að full hlaða aftur.

Hægt er að tegja Soundboxið við rafmagn og sleppa battery-inu

Stilla þarf saman síma og Soundboxið með Bluetooth tengingu.

ath... að volume takkinn á soundboxinu og símanum geta verið í lægsta eða hæðstu stillingu, passa vel.

Hægt er að tengja saman 2 Soundbox, Sjá kennslu myndband á youtube

  1. Select your HOST by turning your SOUNDBOKS Go on.
  2. Press the orange connect button until the HOST LED lights up.
  3. Set the other speakers to JOIN by pressing the connect button as well.

 

Frekari upplýsingar og aðstoð gefur Sófus í síma 660-1770.