1. Upplýsingar um seljanda
Ísbúðin Garðabæ /
isbud.is er í eigu SG Veitinga ehf. kt. 410693-2599, Litlatún 3, 210 Garðabæ, sími 578-9500, VSK-númer 38097. Ábyrgðarmaður er Sófus Gústavsson.
Við biðjum viðskiptavini okkar um að vinsamlegast lesa skilmálana vandlega yfir áður en verslað er
isbud.is
Með því að nota vefverslun Ísbúðarinnar í Garðabæ, hér eftir kallað
isbud.is, samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
2. Persónuupplýsingar
Við virðum friðhelgi og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er á isbud.is þarf að gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang. Upplýsingarnar eru eingöngu nýttar til þess að ganga frá pöntun. Kaupsaga er þó vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæði isbud.is heldur hjá Valitor. Isbud.is deilir undir engum kringumstæðum upplýsingum til þriðja aðila.
3. Vöruábyrg
Ekki er hægt að skila vörum sem keyptar eru í vefverslun isbud.is. Ef óánægja kemur upp með gæði eða nákvæmni upplýsinga um það sem keypt er í isbud.is eru viðskiptavinir hvattir til þess að hafa samband á tölvupósti til isbud@isbud.is. Vinsamlegast takið fram hvað það var að og sendið með pöntunarnúmer og dagsettningu.
Nákvæmni upplýsinga
Við gerum okkar besta bæði í afgreiðslu og að vöruupplýsingar og myndir séu réttar á isbud.is. Upp geta komið tilvik þar sem þar sem munur er á litbrigði eða lagi á vörum. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur. Við reynum alltaf að gera okkar besta og góðar ábendingar alltaf vel þegnar.
5. Verð
Uppgefið verð á isbud.is er í íslenskum krónum og er virðisaukaskatturinn innifalinn í verðinu. Athugið að verðbreytingar eða tilboð hjá isbud.is eru ekki endilega auglýstar fyrirfram og geta breyst án fyrirvara.
6. Ferill pantana
Þegar viðskiptavinur hefur lokið við að panta fær hann sendan tölvupóst með pöntunarnúmeri sem og kvittun fyrir vörukaupunum. Kvittun jafngildir þó ekki afgreiðslu og áskiljum við okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um misferli vaknar.
Pantanir sem sækja á í verslun verða afgreiddar á umbeðnum tíma í verslun okkar Litlatúni 3 í Garðabæ ef um hefðbundin opnunartíma er að ræða. Annars um leið og Ísbúðin opnar næsta dag á þeim tíma sem óskað er eftir. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga og er FRÍ heimkeyrsla er í boði á höfuðborgarsvæðinu og keyrt heim samdægurst ef pöntun er yfir 4000 kr og berst fyrir kl 22, ath frí heimsending er alla daga 14-22. Pöntun getur tekið allt að 30-90 min að berast og bendum við viðskiptavinum að panta tímanlega.
Allar heimsendingar þarf að greiða á netinu, starfsmaður er ekki með posa. Þeir sem greiða á netinu og sækja þurfa ekki að standa í röð, einfaldlega láta vita af sér og næsti lausi starfsmaður afhendir pöntunina.
7. Greiðsluleiðir
Eftirfarandi kort er hægt að nota hjá
isbud.is
- Visa
- Mastercard
- Electron
- Maestro
8. Greiðsluvandamál
Pöntun er aldrei afgreidd ef greiðsla berst ekki, ekki er hægt að hringja inn greiðslur en við leyfum millifærslur 0546-26-90 kt 410693-2599 (vinsamlegast sýnið greiðslukvittun við afhendingu)
9. Öryggi vefsvæðis
Við leggjum okkur fram við að tryggja öryggi viðskiptavina okkar og notum bestu tæknina til þess að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Lokaskrefið í pöntunarferlinu flytur viðskiptavininn yfir á https-svæði Valitors þar sem viðskiptavinur setur inn kortaupplýsingar. Við mælumst til að viðskiptavinir okkar séu alltaf með nýjustu útgáfu af vafra.
Isbud.is vistar engar kortaupplýsingar hvorki á vefþjónum okkar né á vefsvæðum.
10. Sendingar
Við gerum okkar besta til að tryggja hraðan afgreiðslutíma. Sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda, fjölda pantana og umfangi pantana. Isbud.is býður eingöngu uppá heimsendingu innan höfuðborgarsvæðisins en stórar ísveislur er alltaf hægt að senda en þá þarf að senda beiðni um tilboð á isbud@isbud.is
11. Afhendingartími
Pantanir eru afgreiddar ALLA DAGA frá kl. 14-22 í heimsendingu en frá 11-23:30 í sótt.
12. Höfundaréttur & vörumerki isbud.is
Allt efni í vefverslun
ISBUD.IS, (vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir, grafík, hljóð og mynd, er í eigu
isbud.is)
Efni af síðunni er ekki heimilt að nota, afrita eða selja án skriflegs samþykkis frá
isbud.is
13. Ágreiningur
Rísi ágreiningur í tengslum við skilmála þessa skal bera hann undir Héraðsdóm Reykjaness.